mánudagur, júní 04, 2007

101 Reykjavík

Þegar ég flutti í bæinn átti ég bleikan plast jakka, var með stutt aflitað hár úfið í hnakkanum...voða töff!!! Ég þekkti engan en eignaðist voðalega góða vini sem í dag eru ennþá betri vinir! Ég var flautustelpa sem ætlaði að flauta til framtíðar. Ég las voða mikið af bókum og átti svolítið erfitt með að skilja hvernig hlutirnir virkuðu hérna í stórborginni, skildi ekki öll orðin sem fólkið notaði eða afhverju það sagði hlutina sem það sagði!

Búin að leggja blessuðum plast jakkanum, breyta um hárgreiðslu og hætt að flauta...allavega í bili! Annars held ég að annað hafði lítið breyst! Ætli ég eigi ekki eftir að líta í spegil eftir 50 ár og hugsa með mér að ég hafi ekkert breyst... hver er þessi gamla kona í speglinum??

|


föstudagur, febrúar 23, 2007

Tíminn og vatnið.....

Hef nú ótakmarkaðan tíma til þess að gera allt sem mér þóknast.... undarleg tilfinning því ég hef bara ekki hugmynd um hvað það er sem mér þóknast að gera!!! En ég hef semsagt ákveðið að taka fallinu í prófinu sem sparki í rassinn!! Ætla að reyna að finna út hvað það er sem mig virkilega langar til að gera.... Líta á þetta sem tækifæri til að þora að hætta í klassískum flautuleik og prófa eitthvað nýtt. Eitthvað sem ég ákveð sjálf en ekki bara gera það sem ég hef alltaf gert af því að ég hef alltaf gert það!!

Annars er það helst að frétta að sólin er farin að skína og brosið mitt breikkar í samræmi við það! Stóri Bró ætlar að koma á klakann í sumar til að vera hestastrákur og auðvitað knúsa mig allveg í köku :) ;) Svo er ég að reyna að kaupa íbúð og er að hugsa um að sækja um í Trúarbragðafræði upp í háskólanum....þá er míns bara næstum því orðin stór!!!! ;)

|


föstudagur, febrúar 02, 2007

Babblidíbabbl...... ;)

Litla fjölskyldan mín hefur stækkað umtalsvert síðustu daga.... fyrst kom Ásta í stað Róskunnar og með henni fylgdi útlendingurinn Gústi! Svo kom Ásta með snákinn sinn rauðeyga og að lokum bættist við mjálmandi dýrið Tóbías (bæjarstjóri ;) sem verður hérna yfir helgina!! Þetta er barasta helmingsstækkun skal ég segja ykkur!! Kanski ekki ýkja merkilegar fréttir en þegar heil vika hefur eingöngu farið í æfingar og lærdóm og samskipti við 5 ára börn 4 tíma á dag þá þykja þetta jú tíðindi til næsta bæjar!! Það er svo afskaplega fátt sem gerist svo það litla sem gerist skiptir líka þeimur meira máli!!! Eða kanski er skýringin á þessu furðulega upplýsingaflæði frekar sú að ég þarf einfaldlega að koma einhverju frá mér....málóð sem ég jú er.... svo upplýsingarnar sjálfar skipta engu máli. Litríki strumpurinn þarf bara að fá að babbla sinn dagsskammt!!

Jæja ég er farin í rúmið með góða bók og mjálmandi Tóbías og bið ykkur vel að lifa!
Góða helgi ;)

|


mánudagur, janúar 29, 2007

Svona sjá 5 ára grislíngarnir mig.....!!!

Af leikskólanum!

M: Hvað gerir maðurinn þinn?
Ég: Ég á engan mann.
M:
HA????? Afhverju ekki?
Ég: Ég bara á engan mann....það eiga ekki allar konur mann!
M: Núúúú........Viltu pabba minn?
Ég: Nei takk ég held ekki.
M: Jújú, ég skal bara spyrja hann hvort honum finnist þú ekki sæt!

(Unnur er fóstra á leikskólanum sem ég vinn á og vinnur hálfa stöðu á móti mér!)

D: Hvar er Unnur?
Ég: Hún er farin heim.
D: Afhverju?
Ég: Af því að hún er alltaf fyrir hádegi og ég er alltaf eftir hádegi!
D: Æji...ég vil fá Unni!!
Ég: Nú er ég ekki nógu skemmtileg?
D: Jújú en Unnur er bara svo sæt!!!!

R: Elín, átt þú barn?
Ég: Nei það á ég ekki. Afhverju? Er ég svona mömmuleg?
R: Nei þú ert ekki neitt mömmuleg!

Ég er semsagt mannlaus, sem er klárlega mjög slæmt í augum mr. & mrs. 5 ára!!! Svo er ég ekki nógu sæt og alls ekki neitt móðurleg!!! Ég hugsa að ég sé barasta hætt við að láta mér þykja vænt um þessa grislínga!!! ;)

|


miðvikudagur, janúar 10, 2007

....og svo flautaði hann....

Þá er róskan enn og aftur að stynga af, nú varð Asía fyrir valinu! Hyggst ekki elta hana í þetta skiptið! Ef ég fer út í ferðalagavitleysuna enn á ný þá ætla ég að gera það ein og algjörlega á eigin forsendum!! En fyrst þarf ég víst að ákveða hvað ég ætla að gera við námið mitt... synd hvað tónlistarnmán er krefjandi!! Það er því miður ekki hægt að geyma það í nokkur ár á meðan maður gerir það sem mann langar til. Hæfileikar eru víst meira þjálfun og æfingar heldur en meðfæddir hæfileikar. Hversu ljúft væri að geta tekið 3-4 ár í að ferðast um heiminn og sjá alskonar furðulegheit meðan flautan biði mín þolinmóð upp í skáp hjá mömmu. Svo kæmi ég heim og spilaði jafn vel, ef ekki bara betur en áður.... en svoleiðis virkar þetta víst ekki. Maður verður að læra að velja og hafna....damn it, afhverju þurfti ég að fæðast vog og vera þar af leiðandi algjörlega sneydd þeim hæfileika...!!!

Hverdsagurinn er komin aftur, hommarnir mínir farnir frá mér enn á ný.

Námspælingar í lausu lofti...að venju!!

Enn þá á leiðinni í body shop að kaupa mér fegrunardrasl....það er búið að standa til síðan í nóvember...

Enn þá á leiðinni að kaupa mér skó fyrir veturinn....tekur því varla úr þessu!!

....Jæja, farin að spila pínu Mozart áður en ég fer upp á leiksóla...vona að það sé fiskur í matinn!!

|


laugardagur, desember 30, 2006

Takk fyrir 2006

Skrítin helgi!! Sá í gær strákinn sem ég varð fáránlega ástfangin af fyrir nokkrum árum og komst að því að enn þá fer maginn í kollhnís og lappirnar gefa sig og eina sem ég get hugsað um er hann.... Fáranlegt alveg hreint því honum þótti aldrei svona vænt um mig, hann er ekki það góður karakter og hann er enn jafn dópaður og alltaf!!! Það fór svo svakalega í taugarnar á mér að drengurinn skyldi hafa þessi áhrif á mig að ég ákvað að hrynja í það einungis til að láta mér líða illa og fá verstu þynnku allra tíma og geta þá allavega látið mér líða illa yfir þynnkunni en ekki hjartanu....En nei! Fjögurhundruð Jagermeister skotum síðar og ég ekki orðin neitt full, svo ég fór bara heim að sofa og vaknaði í dag með ekki svo mikið sem vott af þynnku. Þvert á móti lýður mér afskaplega vel....fyrir utan endalausan pirring út í sjálfan mig!! Til að bæta pínu við pirringinn mínn þá datt ég inn á blogg hjá manni sem skipti mig alveg heilmiklu máli á árinu til þess eins að komast að því að ég skipti hann engu máli á líðandi ári....pirringur jókst!!! Kom mér svosem ekkert á óvart en samt ekkert skemmtileg uppgötvun! Ojæja....eyddi í kjölfarið MySpace-inu mínu, alltaf svo þroskuð þegar ég er að takast á við hlutina!!! Uhummmmmm Ojæja. Mér líður allavega pínu eins og ég hafi skellt hurðinni á smettið á fortíðinni....betra en ekki neitt!!! ;)

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir :)

|


miðvikudagur, desember 27, 2006

Dont kill Anna!!!

Fyrstu jólin sem ég man eftir voru jólin sem ég fékk Önnu. Anna var uppáhalds dúkkan mín, litla barnið mitt!! Þessa óendanlegu ást mína á Önnu notaði bróðir minn oft til að kvelja mig! Honum fanst til dæmis mjög gaman að þrykkja henni í vegg eða setjast á hana og einu sinni kom ég meira að segja inn í herbergið mitt og þá hékk Anna mín í hengingasnúru niður úr ljósakrónunni minni!! Hún er meira að segja með rakvélaskurði á kinninni því bróðir minn vildi sýna mér fram á að Anna væri svo sannarlega ekki lifandi því ef hún væri það þá myndu skurðirnir gróa!! Svo í dag er Anna pínu sjúskuð, enn með skurði í andlitinu en samt sem áður alltaf pínu lifandi!!!

En núna elska ég Ragnar meira en Önnu svo hann er alveg hættur að reyna að murka úr henni það litla sem hún á eftir af lífi og ég er hætt að hefna mín með því að rústa frímerkja safninu hans eða stela kúlunum hans!! We are one big happy family!!!

Gleðilega hátið allir saman!!! :)

|